Psalms 60

1Til söngstjórans. Lag: Vitnisburðarliljan. Miktam eftir Davíð, til fræðslu, 2þá er hann barðist við Sýrlendinga frá Mesópotamíu og Sýrlendinga frá Sóba, og Jóab sneri við og vann sigur á Edómítum í Saltdalnum, tólf þúsund manns. 3Guð, þú hefir útskúfað oss og tvístrað oss, þú reiddist oss _ snú þér aftur að oss. 4Þú lést jörðina gnötra og rofna, gjör við sprungur hennar, því að hún reikar. 5Þú lést lýð þinn kenna á hörðu, lést oss drekka vímuvín. 6Þú hefir gefið þeim, er óttast þig, hermerki, að þeir mættu flýja undan bogunum. [Sela] 7Hjálpa þú með hægri hendi þinni og bænheyr oss, til þess að ástvinir þínir megi frelsast. 8Guð hefir sagt í helgidómi sínum: ,,Ég vil fagna, ég vil skipta Síkem, mæla út Súkkót-dal. 9Ég á Gíleað og ég á Manasse, og Efraím er hlíf höfði mínu, Júda veldissproti minn. 10Móab er mundlaug mín, í Edóm fleygi ég skónum mínum, yfir Filisteu fagna ég.`` 11Hver vill fara með mig í örugga borg, hver vill flytja mig til Edóm? 12Þú hefir útskúfað oss, ó Guð, og þú, Guð, fer eigi út með hersveitum vorum. [ (Psalms 60:13) Veit oss lið gegn fjandmönnunum, því að mannahjálp er ónýt. ] [ (Psalms 60:14) Með Guðs hjálp munum vér hreystiverk vinna, og hann mun troða óvini vora fótum. ]
Copyright information for Icelandic